Skemmdir unnar í Selskógi
Enn og aftur hefur útivistarparadís Grindavíkur í Selskógi orðið fyrir barðinu á skemmdarvörum. Að þessu sinni var skúrinn í Selskógi stórskemmdur en hann var reyndar nokkuð illa leikinn fyrir. Að þessu sinni var búið að gera stórt gat á skúrinn og skemma hann enn frekar innandyra.
Þá var umgengni í kringum skúrinn slæm, búið að velta ruslatunnu og drasl lá víða. Ekki hefur náðst í skemmdarvargana.
Í gær sást til þriggja ungra pilta henda niður steinum í sólarvéinu við íþróttamiðstöðina. Nokkuð stórt sárt myndaðist í hlöðnum veggnum, eins og sést á neðstu myndinni.