Skemmdir unnar á flugvél
Lögreglan á Suðurnesjum var um helgina kölluð út vegna skemmda sem unnar höfðu verið innanborðs á flugvél Icelandair sem var að koma frá Portland. Búið var að krota, að líkindum með tússpenna, á innréttingar salerna í vélinni.
Voru sjáanlegar skemmdir á skápum á þremur salernum sem staðsett eru fyrir miðu vélarinnar. Lögreglan rannsakar málið.