Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skemmdir á sætum í stúkunni á Grindavíkurvelli
Orri Freyr Hjaltalín, vallarstjóri á Grindavíkurvelli
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 25. september 2023 kl. 15:51

Skemmdir á sætum í stúkunni á Grindavíkurvelli

Það var ófögur sjón sem blasti við vallarstjóra Grindavíkurvallar, Orra Freys Hjaltalín eftir helgina en þá höfðu tugir sæta í stúkunni verið eyðilögð. 

„Þetta er einhver hópur af krökkum eða unglingum sem eru að hanga hérna í stúkunni. Sum af þessum sætum voru léleg og hálf brotin en það er búið að taka u.þ.b. tíu sæti sem ekkert var að og mölbrjóta þau, ásamt því að taka ónýtu sætin og brjóta þau algjörlega. Við viljum komast til botns í þessu máli og finna þá sem eru ábyrgir fyrir þessari eyðileggingu."

Ljóst er að tjónið er mikið og kostnaðarsamt. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um þá eða þau sem skemmdu stúkuna er bent á að hafa samband við Orra Frey Hjaltalín vallarstjóra í síma 867-0255, eins og fram kemur á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024
Ivan Jugovic, starfsmaður á Grindavíkurvelli þungt hugsi