Skemmdaverk á fjórum bílaleigubílum
	Tilkynnt var um skemmdarverk á fjórum bílaleigubílum í Reykjanesbæ og þjófnaði úr tveimur þeirra í síðustu viku. Þegar lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang kom í ljós að rúður höfðu verið brotnar í fjórum bílum og útvarpi stolið úr tveimur þeirra. Læsing í einum þeirra hafði verið boruð út og önnur tvö göt höfðu verið boruð í framhurð farþegamegin. Bílaleigan sem á bílana er með geymslusvæði á þessum stað og hafa bílarnir staðið þar í vetur.
	Málið er í rannsókn


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				