Skemmdarverk unnin á skurðgröfu
Skemmdarverk voru unnin á skurðgröfu við áhaldahús Sandgerðisbæjar nú um helgina og nemur tjónið hundruðum þúsunda. Aðkoman var heldur ljót þegar starfsmenn komu að í morgun en búið var að brjóta hverja einustu rúðu í tækinu og var greinilegt að stórir grjóthnullungar höfðu verið notaðir til verksins.
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem slík skemmdarverk eru unnin á tækjum við áhaldahúsið í Sandgerði en fyrir nokkrum vikum fékk önnur skurðgrafa þar svipaða útreið.
Lögreglu var tilkynnt um atburðinn í morgun og eru þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um málið beðnir um að hafa samband við hana.
Eins og sjá má á þessum myndum var aðkoman heldur ljót í morgun þegar starfsmenn áhaldahússins komu að.
VF-myndir: elg