Skemmdarverk unnin á sjónvarpssendi í Keflavík
Skemmdarverk voru unnin á endurvarpa fyrir Digital Ísland í Keflavík síðdegis. Einhver eða einhverjir fóru inn á lokað svæði við fjarskiptamastrið ofan Eyjabyggðar og skrúfuðu endurvarpann lausan og létu hann svo falla til jarðar. Vegna þessa varð sjónvarpslaust hjá notendum Digital Ísland í um tvær klukkustundir í kvöld.
Að sögn viðgerðarmanna er þetta í annað skiptið á um einum mánuði sem skemmdarverk eru unnin með þessum hætti á endurvarpanum. Skemmdarvargarnir hafa undir girðingu við mastrið og klifra upp í það til að losa endurvarpann. Verkfæri þarf til að losa endurvarpann.
Lögreglan í Keflavík var kölluð til og fer með rannsókn málsins.