Skemmdarverk í Vogum
Stungið var á fjóra hjólbarða bátakerru sem stóð við Jónsvör í Vogum. Einnig var afturhleri á bifreið sem stóð nálægt kerrunni skemmdur töluvert. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær skemmdarverkin hafa verið unnin en upp komst um málið um síðustu helgi. Lögreglan í Keflavík óskar eftir upplýsingum um málið.