Skemmdarvargar á ferð í Sandgerði
Skemmdarvargar gengu berserksgang í Sandgerði um helgina og brutu rúður í Shellskálanum, Áhaldahúsinu og í Samkaupum. Ekki var brotist inn í þessa staði.
Talið er að skemmdarverkin hafi verið unnin um hálf sex leytið að morgni laugardags en þjófavarnakerfið fór í gang í Shellskálanum klukkan 06:40.
Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um verknaðinn er vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.
Af www.245.is