Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Skelfilegur atburður í Skessuhelli
Mánudagur 9. september 2013 kl. 15:37

Skelfilegur atburður í Skessuhelli

Í gær, sunnudag um klukkan 16:00, voru lögregla og sjúkralið send í Skessuhelli norðan við smábátahöfnina í Grófinni í Reykjanesbæ. Þar hafði sá hryggilegi atburður orðið, að karlmaður hafði svipt sig lífi. Börn sem voru þarna að leik urðu mannsins vör, en Skessuhellir er manngert birgi, sem er alla jafna fjölsótt af börnum og unglingum. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglurnar á Suðurnesjum.

Rannsókn leiddi í ljós að maðurinn, sem var fertugur að aldri, var hælisleitandi sem hefur dvalið á gistiheimilinu FIT í Reykjanesbæ í skamman tíma ásamt syni sínum sem er á unglingsaldri. Barnaverndaryfirvöldum var gert viðvart og tóku þau drenginn í sína umsjá. Börnunum sem komu að manninum og forráðamönnum þeirra var veitt áfallahjálp í kjölfar atburðarins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögreglan á Suðurnesjum annast rannsókn málsins og mun ekki gefa frekari upplýsingar um málsatvik.