Skaut 20 skotum í íbúð á Vatnsleysuströnd
Karlmaðurinn sem handtekinn var í gærkvöldi að Vatnsleysuströnd verður yfirheyrður í dag, en hann er 35 ára gamall. Talið er að maðurinn hafi skotið um 20 skotum í íbúð sem hann býr í ásamt sambýliskonu sinni og mánaðargömlu barni.
Tilkynning til Lögreglunnar í Keflavík barst rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærkvöldi um að maðurinn væri að skjóta úr riffli, en tilkynningin barst frá sambýliskonu mannsins. Hún hafði þá flúið íbúð sína ásamt barni og læst sig inni á salerni neðri íbúðarinnar. Lögreglan telur að maðurinn hafi ekki ætlað að gera konu sinni og barni mein, en maðurinn ók á bíl sínum til móts við lögregluna og gekk út úr bílnum með uppréttar hendur. Maðurinn var handtekinn og við leit í bílnum fannst 223 kalíbera riffil sem var hlaðinn. Maðurinn var fluttur í fangageymslur Lögreglunnar í Keflavík þar sem hann gistir og verður yfirheyrður í dag. Mikill viðbúnaður var á staðnum og tóku lögregluembættin í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík öll þátt í aðgerðum, ásamt Víkingasveit Ríkislögreglustjóra. Við húsleit fundust 40 grömm af hassi.
VFLjósmynd: Mikill viðbúnaður var á staðnum og m.a. voru sendir sjúkrabílar á vettvang.