Skattar lækkaðir um 30 milljónir
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur brugðist við áskorun Félags atvinnurekenda varðandi lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.
Í svörum bæjarráðs segir að það hafi nú þegar tekið ákvörðun um lækkun fasteignaskatts C-stofns atvinnuhúsnæðis úr 1,6% í 1,55% sem hefur í för með sér lækkun tekna sveitarfélagsins úr 941 milljónum í 911 milljónir eða um 30 milljónir króna. Þetta er annað árið í röð sem Reykjanesbær lækkar álagningarstuðul fasteignaskatts.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				