Sjúkrahús og einkahótel í Leiruna?
Fulltrúar frá PrimaCare hafa skoðað aðstæður í Garði með það fyrir augum að byggja sjúkrahús og einkahótel. Að sögn Ásmundar Friðrikssonar, bæjarstjóra í Garði, er sveitarfélagið tilbúið að leggja sjúkrahúsinu til glæsilega lóð við sjávarsíðuna við Gufuskála í Leiru. Þá samþykkti bæjarráðs Garðs í gærkvöldi viljayfirlýsingu um samstarfsvilja viðPrimaCare.
Hugmyndir PrimaCare snúa að byggingu sjúkrahúss þar sem framkvæmdar yrðu 3000 aðgerðir á ári í tengslum við mjaðma- og hnjáliði. Í tengslum við sjúkrahúsið yrði einnig 70 herbergja einkahótel fyrir aðstandendur sjúklinga. Einnig verður rannsóknarstofa við sjúkrahúsið.
Ásmundur bæjarstjóri sagðist hóflega bjartsýnn á að sjúkrahúsið yrði byggt upp í Garðinum. Nokkrir aðrir staðir hafa einnig verið til skoðunar. Verkefnið sé búið að vera lengi í pípunum og forsvarsmenn PrimaCare hafa komið til fundar við yfirvöld í Garði. Horft sé til grænnar orku á Suðurnesjum, nálægðar við alþjóðaflugvöllinn og staði eins og Bláa lónið. Þá sé lóðin sem boðin sé undir sjúkrahúsið með glæsilegu útsýni yfir Faxaflóa.
Verði að uppbyggingunni í Garði hafi hún áhrif á allt samfélagið á Suðurnesjum, enda skapi sjúkrastofnun sem þessi fjölmörg störf. Hugmyndir PrimaCare miða að því að starfsemi geti hafist á árinu 2012.
Myndin: Land Gufuskála í Leiru. PrimaCare hefur skoðað lóðina með tilliti til byggingar sjúkrahúss og einkahótels. Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson