MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Fréttir

Sjúkraflugvél í vélarbilun
Fimmtudagur 18. október 2012 kl. 15:17

Sjúkraflugvél í vélarbilun

Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni tilkynning frá öryggisgæslunni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þess efnis að flugvél í sjúkraflugi hefði þurft að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna vélarbilunar.

Vélin var að koma frá Manchester og var á leið til Kanada. Tveir voru í áhöfn hennar og með henni  voru sjúklingur, aðstandandi hans svo og læknir. Sjúkraflutningamenn sáu um að flytja sjúklinginn á sjúkrahús.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept
Bílakjarninn
Bílakjarninn