Bygg
Bygg

Fréttir

Sjötti maðurinn í gæsluvarðhald
Laugardagur 29. mars 2008 kl. 12:01

Sjötti maðurinn í gæsluvarðhald



Sjötti maðurinn sem handtekinn var í Keilufellsmálinu, þar sem hópur manna réðist inn á heimili í Breiðholti og misþyrmdi fjölmörgum, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. apríl nk. Hann er búsettur í Reykjanesbæ eins og flestir hinna sem þegar eru í haldi, en um er að ræða fimm Pólverja og einn Litháa.

Lögregla hefur staðið fyrir umsvifamiklum aðgerðum í rannsókn málsins og fór m.a. hús úr húsi í Reykjanesbæ fyrr í vikunni í leit að mönnum sem tengjast málinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Er lögð mikil áhersla á að leysa málið, enda ófagrar lýsingar af áverkum þeirra sem sættu árásinni.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum.

VF-mynd frá aðgerðum lögreglu sl. þriðjudag