Bygg
Bygg

Fréttir

Sjórinn kraumar af makríl
Miðvikudagur 5. ágúst 2009 kl. 18:35

Sjórinn kraumar af makríl

Sjórinn utan við höfnina í Keflavík kraumaði í dag af makríl. Stórir flekkir voru við yfirborðið og jafnvel gusugangur þar sem torfur af makríl fóru framhjá. Erfitt er að segja til um hversu mikið magn af makríl er þarna á ferðinni. Ekki er vitað hvort torfurnar eru þykkar eða bara rétt við yfirborðið.

Meðfylgjandi mynd var tekin í dag og dökki flekkurinn er ein af mörgum makríltorfum sem gengu framhjá Keflavíkurhöfn í dag.

Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi

Bílakjarninn
Bílakjarninn