Sjóræningi með stungusár sóttur á Reykjaneshrygg


TF-LIF fór í loftið kl. fjögur og fékk fylgd þyrlu varnarliðsins þar sem um svo langa vegalengd var að ræða. Þegar þyrlurnar komu að skipinu var það statt 240 sjómílur frá Reykjavík. Vel gekk að hífa manninn um borð og að sögn Magnúsar Arnar Einarssonar stýrimanns/sigmanns í áhöfn þyrlunnar var mikill munur að hafa skipverja frá Óðni um borð í Ostrovets til að aðstoða við hífinguna. Það flýtti fyrir því þá þurfti sigmaður ekki að fara niður í skipið til að undirbúa hífinguna. Það skipti einnig máli vegna flugþols þyrlunnar en þetta sjúkraflug var í lengsta lagi.
Samkvæmt upplýsingum frá Ostrovets er hinn slasaði 29 ára karlmaður frá Rússlandi en flestir í áhöfn skipsins eru Rússar. Áhöfn TF-LIF hafði náð hinum slasaða um borð um sexleytið í morgun og kom þyrlan til Reykjavíkur kl. 8:20 og var hinn slasaði fluttur á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi.

slóðinni: http://neafc.org/measures/index.htm
Meðfylgjandi myndir tók Sverrir Erlingsson flugvirki/spilmaður í áhöfn TF-LIF er komið var að togaranum í nótt. Sjá má varðskipið Óðinn við hlið togarans og ein myndin er af þyrlu Varnarliðsins sem fylgdi TF-LIF til öryggis. Myndina inni í TF-LIF tók Magnús Einarsson stýrimaður af lækni og flugvirkja að störfum.
