Bygg
Bygg

Fréttir

Sjónvarp Víkurfrétta í Reykjanesbæ – fjörugur bæjarstjórnarfundur
Miðvikudagur 6. febrúar 2008 kl. 03:23

Sjónvarp Víkurfrétta í Reykjanesbæ – fjörugur bæjarstjórnarfundur

Fundur í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, sem fram fór í bíósal DUUS-húsa síðdegis í gær, er nú sýndur í Sjónvarpi Víkurfrétta á kapalkerfinu í Reykjanesbæ. Kapalsjónvarpsstöðin, Sjónvarp Víkurfrétta, er aðgengileg  bæði á hliðrænni og stafrænni rás á kapalkerfinu og er í dag dreift inn á um 2000 heimili í Reykjanesbæ. Um tilraunaútsendingu er að ræða.

Víkurfréttir eru með í undirbúningi skipulagða dagskrá í Sjónvarpi Víkurfrétta og standa vonir til að hún fari í loftið síðar í febrúarmánuði. Verið er að leysa ýmis tæknileg atriði og setja upp myndver.

Í Sjónvarpi Víkurfrétta verða fluttar fréttir úr samfélaginu á Suðurnesjum, auk þess sem íþróttum verða gerð skil og viðtalsþættir verða á dagskrá. Þá verður í Sjónvarpi Víkurfrétta upplýsingasjónvarp með öllu því helsta sem er að gerast í samfélaginu á hverjum tíma.

Náið samstarf verður milli Sjónvarps Víkurfrétta og vf.is. Efni af vf.is mun birtast í sjónvarpinu og fréttir, viðtalsþættir og annað efni sem unnið er fyrir Sjónvarp Víkurfrétta mun birtast á vefnum vf.is. Þá verður í dagskrá Sjónvarps Víkurfrétta aðgengileg á netinu þegar fram líða stundir.

Sjónvarp Víkurfrétta mun fara hægt af stað. Dagskráin verður byggð upp smátt og smátt og hún látin þróast, m.a. eftir viðbrögðum frá áhorfendum.

Það efni sem í dag er sent út í Sjónvarpi Víkurfrétta flokkast undir tilraunaútsendingu. Upptakan á fundi bæjarstjórnar er liður í tilraunum okkar. Útsendarar Sjónvarps Víkurfrétta tóku upp nær allan fund bæjarstjórnar Reykjanesbæjar síðdegis í gær og senda út upptökuna á kapalkerfinu í dag. Fundurinn varð nokkuð fjörugur og því var kastað fram að nærvera sjónvarpsvélarinnar hafi haft þar einhver áhrif. Sá möguleiki verður kannaður í framtíðinni að taka upp fundina og senda út eftirá eða sýna beint frá fundum bæjarstjórnar. Um það á eftir að semja við bæjaryfirvöld.

Sjónvarp Víkurfrétta er opið fyrir ábendingum um hvaðeina sem erindi getur átt í dagskrá stöðvarinnar á kapalkerfinu í Reykjanesbæ. Besta leiðin til að hafa samband við Sjónvarp Víkurfrétta er með tölvupósti á [email protected]

 

Mynd: Svona er útlit útsendingar Sjónvarps Víkurfrétta á kapalkerfinu í Reykjanesbæ í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn