HSS
HSS

Fréttir

Sjónvarp VF: Þetta er hún Fida Abu Libdeh
Föstudagur 7. ágúst 2015 kl. 00:17

Sjónvarp VF: Þetta er hún Fida Abu Libdeh

Fida Abu Libdeh, frumkvöðull á Ásbrú í Reykjanesbæ, sem kjörin var „Maður ársins á Suðurnesjum 2014“ af Víkurfréttum, hefur að undanförnu verið að ná árangri í sölu á kísilfæðubótarefni eins og greint var frá á vf.is í gær.  Hér að neðan má sjá viðtalið við Fidu í Sjónvarpi Víkurfrétta í ársbyrjun eftir að hún var valin „Maður ársins á Suðurnesjum“.

Af vf.is í janúar:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fida Abu Libdeh er frumkvöðull á Ásbrú í Reykjanesbæ sem kom til Íslands þegar hún var 16 ára gömul. Fida er fædd og uppalin í Palestínu. Henni gekk illa að fóta sig í íslenska menntakerfinu eftir komuna til landsins. Hún vildi mennta sig meira og gera meira á lífsleiðinni en var komin í öngstræti þegar hún uppgötvaði háskólabrú í Keili á Ásbrú. Þar var hún greind með lesblindu og fékk viðeigandi hjálp til að halda áfram að læra. Það gerði hún með stæl, lauk stúdentsprófi og síðan í framhaldinu þriggja ára háskólanámi í umhverfis- og orkutæknifræði.

 Hún stofnaði síðan frumkvöðlafyrirtæki með skólafélaga sínum Burkna Pálssyni og nú um áramótin kom vara þeirra á markaðinn en það er hágæða kísilfæðubótarefni, unnið úr náttúrulegum íslenskum jarðhitakísli. Hún lét ekki þar við sitja á menntunarbrautinni heldur fór samhliða vinnu sinni í nýja fyrirtækinu í MBA nám í Háskólanum í Reykjavík sem hún klárar næsta vor. Það var ekki alveg nóg því hún bætti við þriðja barninu en hún er gift Jóni Kristni Ingasyni viðskiptafræðingi. 

Fjölskyldan býr á Ásbrú og var með fyrstu íbúunum sem flutti þangað árið 2007.

 Sjónvarp Víkurfrétta tók hús á Fidu í vikunni og í þætti kvöldsins heimsækjum við Fidu í fyrirtækið hennar, GeoSilica, og fáum að kynnast þessari kraftmiklu Suðurnesjakonu.