Mánudagur 11. september 2000 kl. 15:42
Sjóndapur þjófur stal morfíni og myndböndum

Brotist var inní tvö skip um helgina, Gullfaxa í Njarðvíkurhöfn og Happasæl, í Sandgerðishöfn. Málin eru í rannsókn hjá lögreglunni í Keflavík.Tilkynnt var um innbrot í Gullfaxa kl. 22:30 sl. laugardagskvöld. Hurð á stýrimannsklefa hafði verið spennt upp en þjófurinn virðist hafa haft mestan áhuga á lyfjakassa skipsins. Morfín var tekið úr kassanum og myndbandstæki stolið.Síðdegis á sunnudag var tilkynnt um innbrot í Happasæl. Báturinn var nýkominn úr róðri en skipverjar tóku eftir, þegar þeir voru að fara af stað í róður nóttina áður, að búið var að fjarlægja ýmsa hluti úr vistarverum þeirra, m.a. myndbandstæki, leikjatölvu, gleraugu, myndbönd og fleira. Samkvæmt þessu er umræddur þjófur sennilega sjóndapur kvikmyndaáhugamaður. Rótað hafði verið í lyfjaskápnum, en ekkert tekið úr honum.Klukkustund áður en tilkynningin kom um innbrotið í Happasæl, hringdi maður frá reiðhöllinni á Mánagrund og sagðist hafa fundið myndbandstæki og leikjatölvu í grennd við reiðhöllina. Talið er að þarna sé um hluta þýfisins að ræða.