Sjómenn samþykktu verkfall
Sjómenn á Suðurnesjum samþykktu að fara í verkfall en atkvæðagreiðslu er ný lokið. Sama staða er annars staðar á landinu, allir hafa samþykkt verktall sem hefst 10. nóvember nk.
Þátttaka var dræm í kosningunni en hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Kefllavíkur og nágrennis kusu 26% þeirra sem eru á kjörskrá hjá VSFK og samþykktu allir að fara í verkfall.
Fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarið haft eftir forráðamönnum sjómanna að mikill hugur sé í sjómönnum.