Sjómenn í verkfall í kvöld
	Atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lauk kl. 12:00 á hádegi í dag.
	
	Aðild að samningnum eiga öll aðildarfélög Sjómannasambands Íslands að Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur og Verkalýðsfélagi Vestfirðinga undanskildum.
	
	Á kjörskrá voru 1.098 sjómenn og sf þeim kusu 743 eða 67,7% af þeim sem voru á kjörskrá.
	
	Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var þessi:
	
	Já sögðu 177 eða 23,82% af þeim sem kusu.
	
	Nei sögðu 562 eða75,64% af þeim sem kusu.
	
	Auðir seðlar voru 4 eða 0,54%
	
	Samkvæmt framansögðu var því samningurinn felldur með meiri hluta greiddra atkvæða. Verkfall hefst því kl. 20:00 í kvöld, 14. desember.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				