Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Sjómannadagur, þjóðhátíðardagur og Ljósanótt með hefðbundnu sniði
  • Sjómannadagur, þjóðhátíðardagur og Ljósanótt með hefðbundnu sniði
Föstudagur 13. maí 2016 kl. 14:23

Sjómannadagur, þjóðhátíðardagur og Ljósanótt með hefðbundnu sniði

Menningarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt drög að dagskrá sveitarfélagsins fyrir nokkra hátíðisdaga sem eru framundan, þ.e. sjómannadaginn, þjóðhátíðardaginn og Ljósanótt 2016.

Sjómannadagshelgin í Reykjanesbæ verður með svipuðu sniði og undanfarin ár og það sama má segja um dagskrá 17. júní í Reykjanesbæ.

Þá leggur menningarráð til að umsjón og framkvæmd Ljósanætur verði á svipuðum nótum og í fyrra um leið og nýjar hugmyndir frá íbúfundi í vetur verði hafðar í huga.

Sjómannadagshelgin í Reykjanesbæ
Á laugardeginum kl. 14.00 verða opnaðar sumarsýningar safnanna í Duus Safnahúsum og allir velkomnir og ókeypis aðgangur. Á sunnudeginum hefur sjómannamessa verið haldin árum saman í Bíósal Duus Safnahúsa í samstarfi  við prestana í Keflavík og Njarðvík til skiptis og nú verður það Njarðvíkursóknin sem sér um messuna kl. 11.00.

17. júní í Reykjanesbæ
Ráðið samþykkti drög að dagskrá 17.júní hátíðarhaldanna.  Ákveðið var að hafa sama lag á skemmtuninni í skrúðgarðinum og í fyrra þ.e. að eftir hefðbundna hátíðardagskrá  í skrúðgarðinum í Keflavík tæki við fjölbreytt fjölskylduskemmtun þar sem lögð yrði áhersla á virkni og fjör og um kvöldið verður unglingaskemmtun í 88 húsinu. Hvetur ráðið félagasamtök í bænum til þátttöku í framkvæmdinni.
Nöfn fánahyllis, fjallkonu og ræðumanns verður gefið upp síðar eins  og vani er.

Ljósanótt 2016
Ráðið leggur til að umsjón og framkvæmd Ljósanætur verði á svipuðum nótum og í fyrra um leið og nýjar hugmyndir frá íbúfundi í vetur verði hafðar í huga. Ljóst er að hátíðin færist sífellt meira í þá átt að verða svokölluð „þátttökuhátíð“ og skipar framlag bæjarbúa sífellt stærra hlutverk. Ráðið lýsir ánægju sinni með þá þróun og hvetur fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að setja mark sitt á hátíðina, hver með sínum hætti.  Sumir leggja til viðburði og vinnu á meðan aðrir leggja til fjármagn og saman gera bæjarbúar þetta að flottustu fjölskyldu- og menningarhátíð landsins.

Ráðið vekur athygli á að nokkrir viðburðir eru orðnir fastir og mega ekki missa sín:

Fimmtudagur:  
Setning hátíðarinnar með öllum nemendum bæjarins við Myllubakkaskóla.
Sölutjöldin sett upp, og kvöldopnanir verslana.
Opnanir myndlistarsýninga í Duus Safnahúsum o.fl. stöðum.

Föstudagur:      
Kjötsúpan og létt dagskrá á hátíðarsvæði.
Tónleikar á vegum íbúanna víða um bæinn, heimahús og veitingahús.

Laugardagur:    
Árgangagangan
Útiskemmtun á Bakkalág
Stórtónleikar á útisviði á Bakkalág.

Sunnudagur:    
Tónleikar og sýningar víða um bæinn.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024