Sjómanna- og vélstjórafélagið gefur hjartastuðtæki í íþróttahúsið
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur færði íþróttahúsinu þar í bæ hjartastuðtæki að gjöf. Tækið var afhent í gær. Magnús Sigurðsson, formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur og Kári Ölversson meðstjórnandi færðu Hermanni Guðmundssyni yfirmanni íþróttamannvirkja bæjarins tækið sem Magnús sagði að þyrfti vonandi aldrei að nota.
Milli jóla- og nýárs fékk knattspyrnumaður í firmamóti hjartastopp. Ekkert hjartastuðtæki er fyrir hendi í íþróttahúsinu og því þurfti að hlaupa yfir í sundlaugina til þess að ná í tækið þar. Sem betur fer fór allt vel en þarna sannaðist að nauðsynlegt er að hafa tæki í íþróttahúsinu.
Hermann þakkaði þeim félögum kærlega fyrir höfðinglega gjöf og sagði hjartastuðtækið aukia öryggi iðkenda í íþróttahúsinu. Tækið er nákvæmtlega sömu gerðar og er í sundlauginni.
www.grindavik.is