Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur undirritaði kjarasamning
- Öllum verkföllum sjómanna frestað
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) og Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) undirrituðu nýjan kjarasamnning í gærkvöld. Samningurinn gildir í tvö ár. Í tilkynningu frá SFS segir að efni samningsins sé sambærilegt því sem samið var um við Sjómannasamband Íslands en SVG samdi einnig um sérstaka línuuppbót að fjárhæð 120.000 krónur til handa tilgreindum sjómönnum á línubátum. Þá var einnig áréttaður sérstakur forgangur á endurskoðun fjarskiptamála með það að augnamiði að lækka fjarskiptakostnað sjómanna.
Öllum verkföllum sjómanna hefur nú verið frestað. Kynningar á gerðum kjarasamningum og atkvæðagreiðslur fara nú fram.