Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sjóarinn síkáti fer ekki fram í ár
Miðvikudagur 22. apríl 2020 kl. 00:03

Sjóarinn síkáti fer ekki fram í ár

Sjómannahátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík fer ekki fram í ár. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Grindavíkurbæjar.

„Undanfarna mánuði hafa Grindvíkingar undirbúið Sjóarann síkáta, sjómanna- og fjölskylduhátíð, sem fram átti að fara í 25 sinn um sjómannadagshelgina í ár. Hátíðin hefur í gegnum tíðina verið vel sótt og þúsundir gesta heimsótt Grindavík þessa helgi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Einn megintilgangur hátíðarinnar er að stuðla að samveru Grindvíkinga og gesta. Erfitt er að hugsa sér að Sjóarinn síkáti fari fram með öðrum hætti en að fólk komi saman og skemmti sér. Í kjölfar víðtæks samráðs við helstu hagsmunaaðila hátíðarinnar hefur verið ákveðið að Sjóarinn síkáti fari ekki fram í ár í ljósi aðstæðna í samfélaginu.

Þó svo ekki fari fram hátíðardagskrá með hefðbundnum hætti munu aðstandendur Sjóarans síkáta leitast við að brjóta upp hversdagsleikann síðar á árinu. Grindvíkingar eru þekktir fyrir að sýna samstöðu þegar á reynir og munu saman sigla í gegnum það ástand sem nú ríkir,“ segir í tilkynningunni sem endar á hvatningu um að sjást á Sjóaranum síkáta 2021.