Sjö vilja forstjórastól HSS
Sjö umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja sem auglýst var laust til umsóknar í nóvember.
Umsækjendur eru:
Ástríður Sigþórsdóttir, heilbrigðisritari
Baldur Þórir Guðmundsson, viðskiptafræðingur
Guðný Birna Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur B. Sc., MPA í Opinberri Stjórnsýslu
Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðingur og stjórnmálafræðingur
Markús Ingólfur Eiríksson, PhD í endurskoðun
Ólafur Þór Ólafsson, stjórnmálafræðingur, MPA í Opinberri Stjórnsýslu
Sigurður Hjörtur Kristjánsson, læknir
Heilbrigðisráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfnisnefndar á umsækjendum. Nefndin starfar á grundvelli laga um heilbrigðisþjónustu..