Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Sjö tilboð bárust í undirbúningsvinnu
Fimmtudagur 22. október 2015 kl. 15:29

Sjö tilboð bárust í undirbúningsvinnu

– vegna Suðurnesjalínu 2

Alls bárust sjö tilboð í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður vegna byggingar Suðurnesjalínu 2, 220 kílóvolta háspennulínu frá Hraunhellu í Hafnarfirði að Rauðamel norðan Svartsengis.

Verkið felur í sér gerð nýrrar vegslóðar með línunni að hluta til, gerð hliðarslóða og vinnuplana við möstur, jarðvinnu vegna undirstaða og stagfesta ásamt efnisútvegun og framleiðslu undirstaða og stagfesta. Verkinu skal að fullu lokið fyrir septemberlok 2016 en línuleiðin er rúmir 32 kílómetrar og möstrin verða 100 talsins.

Lægsta boð tæplega 70 milljónum undir áætlun
Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á tæplega 390 milljónir króna. Útboðið var auglýst í september og voru tilboðin sjö sem bárust í verkið opnuð á skrifstofu Landsnets s.l. þriðjudag. Íslenskir aðalverktakar eiga lægsta boðið, en eftirfarandi tilboð bárust:

Bjóðandi
Íslenskir aðalverktakar 319.974.416.-
LNS Saga 323.765.667.-
Ístak hf. 367.137.521.-
Urð og grjót ehf. 499.826.181.-
Borgarverk ehf. 510.678.686.-
Þjótandi ehf. 549.095.138.-
Ellert Skúlason ehf. 689.667.354.-

Kostnaðaráætlun 389.535.559.-

Næstu skref
Sérfræðingar Landsnets fara nú yfir tilboðin og bera þau saman. Á grundvelli þeirrar niðurstöðu verður síðan gengið til samninga við þann aðila sem er með lægsta tilboðið, að því gefnu að hann uppfylli kröfur um hæfi. Næst liggur svo fyrir að að bjóða út eftirlit með framkvæmdinni og verður það auglýst á næstunni, segir á vef Landsnets

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024