Sjö þingmenn af Suðurnesjum
Suðurnesjamenn eiga sjö menn á þingi eftir þingkosningarnar í gær. Framsóknarflokkur fékk fjóra þingmenn í Suðurkjördæmi eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Samfylkingin fékk einn mann og Björt framtíð fékk einn þingmann, sem er uppbótarþingmaður kjördæmisins. Þetta eru sjö af tíu þingmönnum kjördæmisins. Þá má segja að tíundi hver þingmaður og rúmlega það komi frá Suðurnesjum.
Þingmenn í Suðurkjördæmi eru:
1) Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokki,
2) Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki,
3) Silja Dögg Gunnarsdóttir, Framsóknarflokki,
4) Unnur Brá Konráðsdóttir, Sjálfstæðisflokki,
5) Páll Jóhann Pálsson, Framsóknarflokki,
6) Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu,
7) Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokki,
8) Haraldur Einarsson, Framsóknarflokki,
9) Vilhjálmur Árnason, Sjálfstæðisflokki,
10) Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð.
Þrír af þingmönnunum sem koma frá Suðurnesjum eru úr Grindavík. Það eru þeir Páll Jóhann Pálsson, Vilhjálmur Árnason og Páll Valur Björnsson. Tveir þingmenn koma úr Garðinum. Það eru þau Oddný Harðardóttir og Ásmundur Friðriksson. Þá eru tveir þingmenn úr Reykjanesbæ, þau Ragnheiður Elín Árnadóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Ragnheiður Elín Árnadóttir er 2. þingmaður Suðurkjördæmis.
Silja Dögg Gunnarsdóttir er 3. þingmaður Suðurkjördæmis. Hún er ný á þingi.
Páll Jóhann Pálsson er 5. þingmaður Suðurkjördæmis. Hann er nýr á þingi.
Oddný G. Harðardóttir er 6. þingmaður Suðurkjördæmis.
Ásmundur Friðriksson er 7. þingmaður Suðurkjördæmis. Hann er nýr á þingi.
Vilhjálmur Árnason er 9. þingmaður Suðurkjördæmis. Hann er nýr á þingi.
Páll Valur Björnsson er 10. þingmaður Suðurkjördæmis. Hann er nýr á þingi.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson og Páll Ketilsson