Fréttir

Sjö teknir með fölsuð skilríki
Miðvikudagur 21. desember 2016 kl. 09:23

Sjö teknir með fölsuð skilríki

Sjö manns hafa framvísað fölsuðum skilríkjum eða skilríkjum í eigu annarra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á undanförnum dögum. Um helgina framvísaði fjölskylda breytifölsuðum belgískum vegabréfum. Karlmaður sem var einn á ferð framvísaði einnig breytifölsuðu belgísku vegabréfi. Annar karlmaður framvísaði finnsku vegabréfi sem hann átti ekki.

Á föstudag framvísaði enn einn norsku vegabréfi sem hann var ekki lögmætur handhafi af og annar var tekinn með ítalskt vegabréf sem reyndist vera falsað.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar