Sjö framboð í Reykjanesbæ
Sjö framboðslistar bárust fyrir sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ í vor. Öll framboðin voru úrskurðuð gild af yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar.
Sveitarstjórnarkosningarnar fara fram laugardaginn 14. maí næstkomandi og verður kjörstaður Fjölbrautaskóli Suðurnesja og verður opið milli kl. 9-22.
Eftirfarandi listar verða boðnir fram við sveitarstjórnarkosningar í Reykjanesbæ 2022:
B - Listi Framsóknarflokks
D - Listi Sjálfstæðisflokks
M - Listi Miðflokks
P - Listi Pírata og óháðra
S - Listi Samfylkingar og óháðra
U - Listi Umbótar
Y - Listi Beinnar leiðar