Sjávarflóð á hafnarsvæðinu í Grindavík
Sjór gekk langt upp á land á hafnarsvæðinu í Grindavík í morgun. Háflóð var um kl. 08 í morgun. Lokunum hafði verið komið upp á nokkrum stöðum við höfnina enda búist við því að sjó myndi flæða yfir bryggjur og nálæg svæði.
Húllið, hátíðarsvæðið neðan við Kvikuna, var umflotið sjó á háflóðinu í morgun og það sama má segja um athafnasvæði við Eyjabakka og þar sem smábátabryggjur eru í Grindavík.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi í Grindavík í morgun.