Sjávarbotninn skoðaður og hlustað á hvalina
Hvalstöðin, eða Whale Waching Centre, gerir út frá Grófinni í Keflavík og er í samstarfi við Kaffi Duus. Hvalstöðin býður upp á fjölbreyttar ferðir í kringum Reykjanesskagann, þ.á.m. hefðbundnar hvala- og fuglaskoðunarferðir auk ýmissa sérferða, sem fólk getur pantað eftir eigin höfði. Boðið er upp á kvöldferðir út í Garðsjó til að sjá sólina setjast handan við Snæfellsjökul og einnig hafa sjóstangaveiðiferðir notið mikilla vinsælda. Boðið er upp á slíkar ferðir hvenær sem veður leyfir. Að veiðiferð lokinni er síðan hægt að slá upp grillveislu og grilla aflann á Kaffi Duus, en það stendur við smábátahöfnina þar sem komið er í land. Mb Gestur er afar vel búinn til skoðunarferða, en hann tekur allt að 38 manns. Hlý og rúmgóð setustofa er um borð, þar sem 12-15 manns geta slakað á og notið útsýnisins, en hún er einnig kjörin fyrir fundahöld. Þá er grill- og eldunaraðstaða um borð, svo hægt er að grilla aflann úr sjóstangaveiðinni jafnóðum. Við réttar aðstæður er hægt að skoða hafsbotninn og lífríkið í sjónum með neðansjávarmyndavél sem er um borð í bátnum. Einnig eru þar hlustunartæki sem gera fólki kleift að hlusta á hljóð hvalanna. Hvalaskoðunarferðir eru farnar alla daga vikunnar fram til 30. september, en lagt er af stað í þær kl. 12:15 og 15:45. Fyrir hvalaskoðunarferðirnar býðst fólki að vera sótt á hótel í Reykjavík, en einnig er farið frá B.S.Í. daglega kl. 10:30 og 14:30.