Sjáum fyrir endann á viðræðum við kröfuhafa
- Reykjanesbær vill fá afskrifaða 6,4 milljarða
„Nú sjáum við fyrir endann á viðræðum við kröfuhafa. Í lok næstu viku mun afstaða þeirra til óska bæjaryfirvalda Reykjanesbæjar um niðurfellingu skulda uppá 6,35 milljarða liggja formlega fyrir. Ef slíkir samningar takast lít ég svo á að um mikilvægt skref í rétta átt sé að ræða fyrir Reykjanesbæ. Áfram verður þó að gæta ítrasta aðhalds og allra leiða leitað til frekari hagræðingar í rekstri sveitarfélagsins. Ef slíkt samkomulag næst hins vegar ekki munum við óska eftir því við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga að sveitarfélaginu verði skipuð fjárhagsstjórn,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar en í bæjarráði í morgun voru lögð fram drög að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu fjárhags sveitarfélagsins og stofnana þess.
Eins og fram hefur komið í tilkynningum Reykjanesbæjar hefur samkomulag náðst við stærsta kröfuhafa sveitarfélagsins Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf. (EFF) um að umfang skuldavanda Reykjanesbæjar og stofnana hans sé 6.350 milljónir króna.
Fulltrúar Reykjanesbæjar hafa frá því í febrúar sl. leitast við að kynna skuldavandann fyrir öðrum kröfuhöfum sveitarfélagsins og stofnana þess, þ.á m. þær forsendur sem ræddar höfðu verið við EFF og mögulegar leiðir að fjárhagslegri endurskipulagningu sveitarfélagsins og stofnana þess.
Afrakstur þeirrar vinnu var kynntur fyrir bæjarráði Reykjanesbæjar í dag. Samhliða voru lögð fram drög að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnana hans. Samkomulagið byggir á áætlunum sveitarfélagsins og viðræðum við kröfuhafa. Það gerir ráð fyrir aðilar að samkomulaginu (fjárhagslegir kröfuhafar) færi niður skuldir og/eða skuldbindingar Reykjanesbæjar og stofnana hans með beinni niðurfærslu samtals að fjárhæð kr. 6.350 milljónir.
Samkvæmt samkomulaginu er gert ráð fyrir að óveðtryggðir kröfuhafar Reykjanesbæjar og eða stofnana bæjarsins samþykki 50% niðurfærslu af skuldum/skuldbindingum sínum við bæinn of stofnanir hans. Fjárhagslegir kröfuhafar Reykjaneshafnar, sem er í eigu Reykjanesbæjar, þurfi að gefa eftir 45% af kröfum sínum.
Í meginatriðum eru ákvæði samkomulagsins eftirfarandi.
1. Að fjárhagslegir kröfuhafar Reykjanesbæjar og/eða stofnana hans sem njóti tryggingar í fasteignum og/eða eru með leigusamning við sveitarfélagið samþykki sama hlutfall í formi niðurfærslu skulda, lækkun leigugreiðslna og/eða breytingu skilmála. Miðað er við að tryggðir fjárhagslegir kröfuhafar gefi eftir 24,4% af skuldum og/eða skuldbindingum sínum við Reykjanesbæ og stofnanir hans. Með tryggðum kröfuhöfum í samkomulaginu er átt við kröfuhafa sem njóta veðtryggingar í fasteignum og/eða eru leigusalar Reykjanesbæjar.
2. Samkomulagið gerir ráð fyrir að óveðtryggðir kröfuhafar Reykjanesbæjar og/eða stofnana bæjarins samþykki 50% niðurfærslu af skuldum og/eða skuldbindingum sínum við Reykjanesbæ og stofnanir hans.
3. Samkomulagið gerir ráð fyrir að fjárhagslegir kröfuhafar Reykjaneshafnar samþykki að gefa eftir 45% af kröfum sínum. Sá hluti skulda sem samsvarar fjárhæð útreiknaðs tryggingaverðmætis sætir 24,4% niðurfærslu en skuldir umfram tryggingaverðmæti eru metnar ótryggðar og sæta 50% niðurfærslu.
4. Allar fjárhæðirnar í samkomulaginu miðast við árslokastöðu ársins 2015.