Sjálfstæðismenn með fund á Flughóteli
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, verður á meðal framsögumanna á fundinum „Með hækkandi sól-lægri skattar-aukin hagsæld,“ sem haldinn verður á Flughótel í Reykjanesbæ á morgun 8. janúar.
Á næstu vikum munu ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda 45 opna, almenna stjórnmálafundi í öllum kjördæmum landsins. Auk Þorgerðar munu Drífa Hjartardóttir og Sólveig Pétursdóttir taka til máls á morgun en fundurinn hefst kl. 14:00 á Flughótelinu.
Mynd fengin af icehotel.is