Föstudagur 31. maí 2002 kl. 09:10
Sjálfstæðismenn í Grindavík fái að ráða bæjarstjóra

Sjálfstæðisflokkurinn í Grindavík og Samfylkingin í Grindavík hafa sent frá sér samstarfsyfirlýsingu um meirihlutasamstarf á kjörtímabilinu 2002 til 2006 í bæjarstjórn Grindavíkur. Yfirlýsingin kveður á um að S-listi fái forseta bæjarstjórnar og fulltrúa í Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. D-listi fær hins vegar að ráða bæjarstjóra og skipi formann bæjarráðs.Í yfirlýsingunni segir að nefndir á vegum bæjarins skiptist í hlutfalli og eftir nánara samkomulagi. Meirihlutinn mun sækjast eftir því við heilbrigðisráðuneytið að gerast reynslusveitarfélag um rekstur heilsugæslunnar.
Varðandi löggæsluna mun meirihlutinn fylgja fast eftir samningi þeim sem gerður var við sýslumann um löggæslu í bæjarfélaginu og vinna út frá honum.
Aðilar eru sammála um að hittast mánudaginn 3. júní nk. og vinna að frekari útfærslu á málefnasamningi sem lagður yrði fyrir fund í viðkomandi félögum.