Föstudagur 22. nóvember 2002 kl. 14:42
Sjaldgæfur furðufiskur í Sandgerði

Fræðasetrið í Sandgerði fékk afhentan fisk sem kallast Stóra Sænál til varðveislu á dögunum, en komið var með dýrið í Náttúrustofu Reykjaness. Sennilega er þetta í fyrsta sinn sem Stóra Sænál næst lifandi og er hún nú til sýnis í Fræðasetrinu í Sandgerði. Samkvæmt Gunnari Jónssyni, helsta sérfræðingi Hafrannsóknarstofnunar í sjaldgæfum fiskum þá sá hann í fyrsta sinn Stóru Sænál á 40 ára ferli í vor. Þegar ljósmyndari Víkurfrétta ætlaði að ná myndum af dýrinu kom í ljós að það er ekki mikið fyrir myndatökur.