Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 26. júlí 2019 kl. 21:35
Sjáið þetta myndband af hvalavöðunni!
Grindhvalavaðan er ennþá í Keflavíkurhöfn og hefur haldið sig á svipuðum slóðum í á fjórðu klukkustund. Fjölmenni fylgist með vöðunni og margir með myndavélar á lofti.
Meðfylgjandi er upptaka úr flygildi Víkurfrétta sem notað var til að mynda hvalina nú undir kvöld.