Bygg
Bygg

Fréttir

Situr uppi með 400 þúsund króna tjón
Fimmtudagur 11. mars 2010 kl. 09:05

Situr uppi með 400 þúsund króna tjón

Ung móðir í Reykjanesbæ situr uppi með 400 þúsund króna tjón á heimilisbílnum sökum þess að tjónvaldurinn stakk af og hefur ekki gefið sig fram. Konan segir tryggingarnar ekki bæta tjónið nema tjónvaldurinn finnist og hvetur hann til að gefa sig fram.

Ekið var utan í bifreiðina, bláa Subaru Legacy, aðfaranótt miðvikudags í síðustu viku þar sem hún stóð mannlaus utan við heimili konunnar að Hringbraut 63.  Bílinn er talsvert dældaður og rispaður á vinstri hlið auk þess sem hliðarspegill brotnaði. Tjónvaldurinn lét sig hverfa út í nóttina og hefur ekki gefið sig fram þrátt fyrir auglýsingu þar um.

„Samkvæmt tjónmati kostar viðgerðin um 400 þúsund krónur. Ég þarf að borga það sjálf nema tjónvaldurinn gefi sig fram og eins og gefur að skilja er ég afar ósátt með það. Gefi tjónvaldurinn sig hins vegar fram er þetta orðið tryggingamál, samkvæmt því sem tryggingarfélagið mitt segir mér. Það þýðir að tryggingarfélags tjónvaldsins bætir tjónið.“ sagði tjónþolinn í samtali við VF. Hún hvetur tjónvaldinn til að hafa samband við sig í síma 846 0669.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


---

Mynd: Hliðarspegilinn brotnaði við áreksturinn og vinstri hliðin er dælduð og rispuð.