Sinna lögbundnu eftirliti í Grindavík
Geta ekki ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja í bænum næturlangt
Kvikusöfnun undir Svartsengi er áfram stöðug. Um 17 milljónir rúmmetra af kviku hafa bæst við kvikuhólfið frá 16. mars sl. Auknar líkur eru taldar á nýju kvikuhlaupi og eldgosi næstu daga. Líklegast er að gjósi á Sundhnúkagígaröðinni. Fyrirvari á eldgosi gæti orðið mjög stuttur.
Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi, segir í tilkynningu frá Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara. Hætta er talin mjög mikil á jarðfalli ofan í sprungur, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gasmengun.
Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun. Þá hafa sprungur verið girtar af.
Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa. Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.
Ekki þykir tímabært af öryggisástæðum að hleypa ferðamönnum að gosstöðvunum. Hættur í og við gíginn eru: Jarðfall ofan í sprungu, sprunguhreyfingar, gosopnum án fyrirvara, hraunflæði, gjóska, gasmengun og jarðskjálftar.
Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða.
Lokunarpóstar eru við Bláalónsveg, Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg. Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg, Suðurstrandarveg og Grindavíkurveg.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík. Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi. Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.
Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt. Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.
Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur. Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.