Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sinfóníuhljómsveit Íslands með afmælistónleika í Reykjanesbæ í kvöld
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
þriðjudaginn 3. september 2019 kl. 09:12

Sinfóníuhljómsveit Íslands með afmælistónleika í Reykjanesbæ í kvöld

Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með tónleika í Hljómahöll í kvöld, þriðjudaginn 3. september, í tilefni af 25 ára afmæli Reykjanesbæjar. Tónleikarnir eru jafnframt upptaktur að Ljósanótt sem haldin er hátíðlega í Reykjanesbæ dagana þar á eftir. Á tónleikunum flytur sópransöngkonan Bylgja Dís Gunnarsdóttir nokkur vinsæl sönglög og aríur með hljómsveitinni en hún hefur sungið víða, meðal annars aðalhlutverkið í Toscu í rómaðri sýningu í Keflavíkurkirkju árið 2011, og hún kennir við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Á tónleikunum hljóma einnig valdir kaflar úr vinsælli leikhústónlist Griegs við Pétur Gaut, meðal annars Morgunstemning og Í höll Dofrakonungs. Stefán Jón Bernharðsson, sem leiðir horndeild Sinfóníuhljómsveitarinnar, leikur einleik í hornkonserti sem Mozart samdi á hátindi ferils síns, um svipað leyti og hann samdi óperuna Brúðkaup Fígarós. Tónleikunum lýkur með hinni stórfenglegu fimmtu sinfóníu Sibeliusar. Hljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason, aðalgestastjórnandi sinfóníuhljómsveitarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Fyrr um daginn mun strengjakvartett skipaður hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika fyrir heimilisfólk á Hrafnistu Nesvöllum og Hlévangi ásamt því að heimsækja skjólstæðinga Rauða krossins á Suðurnesjum.

Bjöllukór Tónlistaskóla Reykjanesbæjar leikur í anddyri Hljómahallarinnar frá kl. 19:00 og fram að tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Athugið að „uppselt“ er á tónleikana en bæjarbúum bauðst að sækja boðsmiða á dögunum og kláruðust þeir allir.