Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Síminn eflir 3G sambandið í Reykjanesbæ
Nú geta íbúar Reykjanesbæjar vafrað með meiri hraða í símanum á dreifikerfi Símans.
Mánudagur 1. júlí 2013 kl. 14:08

Síminn eflir 3G sambandið í Reykjanesbæ

Nítján 3G sendar af hraðvirkustu gerð hafa verið settir upp hjá Símanum víða um land. Þeir ná 42 Mb/s og eru tvöfalt hraðvirkari en hröðustu forverarnir hjá Símanum. Reykjanesbær fær sinn sendi.

„Við erum mjög stolt af þessari þróun og enn sterkara dreifikerfi Símans,“ segir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. „Síminn eflir 3G kerfið samhliða því að hefja uppbyggingu á 4G síðla hausts – sem þá eykur enn hraða gagnaflutnings um netið í gegnum farsímakerfið. „Það kemur líklega mörgum á óvart að nú er mesti vöxturinn í 3G farsímatækni í heiminum og útlit fyrir að hraðinn á 3G eigi enn eftir að tvöfaldast,“ segir hún.

„Þetta er ástæða þess að við hjá Símanum byggjum enn upp 3G kerfið okkar auk þess að hefja 4G uppsetningu. En önnur mikilvæg ástæða er að við vitum sem er að ef slökkt yrði á gagnaflutningi í gegnum 3G kerfið og skipta algjörlega yfir á 4G senda á einni nóttu þyrftu 98 af hverjum 100 viðskiptavinum að fá sér nýtt 4G símtæki/tölvu eða tengja hnetur, punga eða annað við núverandi búnað sinn,“ segir hún. „Og vart væri það framþróun og því ekki inni í myndinni.“

Sendarnir nítján eru  á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Keflavík,Egilsstöðum, Grímsnesi, Biskupstungum, Laugarvatni og Selfossi. „Þetta er byrjunin,“ segir Gunnhildur. „Við hlökkum til að sjá hvernig viðskiptavinir okkar upplifa kraftinn aukast enn á dreifikerfi Símans.“

Hún segir að á endanum muni viðskiptavinir fjarskiptafyrirtækja ekki gera greinamun á 3G og 4G. „3G eða 4G verður í raun aðeins merki á símtækinu.  Með stefnu Símans trúum við að við getum boðið flottustu upplifunina.“

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024