Þriðjudagur 1. júlí 2003 kl. 18:10
Símakerfi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í ólagi
Símakerfi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er í ólagi og má búast við því að bilunin vari í um sólarhring, að því er fram kom í útvarpi áðan. Þeir sem þurfa lífsnauðsynlega að ná í stofnunina er bent á að hringja í Neyðarlínuna, síma 112.