Bygg
Bygg

Fréttir

Símabúnaður steiktist og sjónvörp sprungu
Fimmtudagur 21. janúar 2010 kl. 11:06

Símabúnaður steiktist og sjónvörp sprungu


Símkerfið í Reykjanesbæ er í lamasessi eftir að eldingu sló niður í mastrið við gömlu símstöðina í Keflavík í miklu gjörningaveðri sem gekk yfir Suðurnesin síðdegis í gær. Talsvert tjón virðist hafa orðið á búnaði í símkerfinu. Vitað er um nokkur tilvik þar sem sjónvarpstæki sprungu í heimahúsum og netbúnaður eða „routerar“ brunnu yfir.
Unnið er að viðgerðum á símkerfinu. Reiknað er með að viðgerðarvinna standi yfir í allan dag og fram á nótt, samkvæmt upplýsingum frá þjónustufulltrúa Mílu á Suðurnesjum.  Um 2000 símanúmer duttu út af völdum eldingaveðursins.

Talsvert högg hefur komið á rafmagnskerfið þegar eldinguna sló niður í mastrið og sló út í nærliggjandi húsum. Starfsmaður hjá gleraugnaversluninni Optical Studio, sem er aðeins ofar í götunni, segir starfsfólk þar hafa orðið nokkuð skelkað.
„Það kom mikill hvellur og okkur brá mikið. Rafmagnið sló út og síminn virkar ekki ennþá. Að öðru leyti virðist ekkert tjón hafa orðið á rafbúnaði í húsinu, “ sagði starfsmaðurinn í samtali við VF.

Bílakjarninn
Bílakjarninn