Silja sækist eftir 2. sæti Framsóknar
Silja Dögg Gunnarsdóttir, skjalastjóri og aðstoðarmaður framkvæmdastjórnar HS Orku og varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjanesbæ, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor.
Silja Dögg er 38 ára gömul, þriggja barna móðir, búsett í Innri-Njarðvík og gift Þresti Sigmundssyni.
Silja Dögg er sagnfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað sem blaðamaður, ritstjóri, lögreglumaður, kennari og rekið eigið fyrirtæki.
Silja Dögg tók sæti sem varamaður í bæjarstjórn Reykjanesbæjar vorið 2010 og er í stjórn Atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar.
Silja Dögg hefur hefur verið í stjórn Framsóknarfélags Reykjanesbæjar síðan 2010 og á sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins og í landsstjórn Landssambands Framsóknarkvenna.