Silja í öðru sæti Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi
Silja Dögg Gunnarsdóttir hafði sigur í baráttu sinni við Birgi Þórarinsson um annað sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í Suðurkjördæmi en kosið var í dag. Silja Dögg, Birgir og Páll Jóhann Pálsson sóttust öll eftir öðru sætinu. Birgir og Silja urðu hlutskörpust eftir fyrri umferð og því var kosið aftur og þá hafði Silja betur. Fékk hún um 2/3 hluta atkvæða.
Sigurður Ingi Jóhannsson fékk 100 prósent atkvæða í 1. sæti en hann var einn í framboði. Páll Jóhann Pálsson varð hlutskarpastur í baráttu um þriðja sæti.
392 voru á kjörskrá og kosið var eftir fyrirkomulagi um tvöfalt kjördæmisþing.