Bygg
Bygg

Fréttir

Silja á fundi með utanríkismálanefnd á Írlandi
Fimmtudagur 27. júní 2013 kl. 12:22

Silja á fundi með utanríkismálanefnd á Írlandi

„Atvinnuleysi ungs fólks í Evrópu var mikið rætt þessa tvo daga og einnig var aðeins komið inn á ástandið í Tyrklandi. Þannig að þetta hefur verið ansi fróðlegt,“ sagði Silja Gunnarsdóttir, þingmaður sem sótti sinn fyrsta fund í útlöndum um síðustu helgi.

„Ég er í Utanríkismálanefnd Alþingis og var sett í Evrópunefnd. Við erum nú þrír fulltrúar og ritari nefndarinnar í Dublin á COSAC fundi, en það er samráðsvettvangur Evrópuþinga. Ýmis mál voru rædd ítarlega; staðan í Evrópusambandinu, framtíð þess, fjölgun ríkja í EU, þátttaka EU landa í þróunarstarfi og stöðu ungs fólks í Evrópu og möguleika þess.

Á lokakvöldinu var okkur síðan boðið til veislu þar sem forseti Írlands var heiðursgestur ásamt fylgdarliði. Skemmtiatriðin voru glæsileg; írsk þjóðlagatónlist og dansar; eitthvað sem Írar eru þekktir fyrir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn