Síldin komin

Óskars Ævarssonar rekstrarstjóri Samherja hf. reiknar með því að hægt verði að vinna úr um 200 tonna afla á sólarhring. Frystigetan í frystihúsinu í Grindavík er um 100 tonn á sólarhring en frystitækin hafa aðallega verið notuð til að frysta loðnuhrogn á síðustu vertíðum.
Grindvíkingur fór aftur á veiðar á hádegi í gær á svipaðar slóðir og fyrr, austur af Eldey. Rúnar Björgvinsson, skipsstjóri segir síldina vera í smærri kantinum en mjög blandaða. „Það er eitthvað af síld á þessum slóðum en það er erfitt að segja hvort þetta sé eitthvað af ráði.“
Hjalti verkstjóri síldarfrystingarinnar var ánægður með síldina sem kom til frystingar í gær þó enn væru ennþá nokkrir byrjunarörðugleikar í frystingunni. „Við erum að snýða agnúan af þessu núna en þetta er góð reynsla. Við erum ekki að frysta mikið núna en síldin á örugglega eftir að koma inn til okkar og við erum að gera okkur klár undir næstu síld.“ Það eru ekki mörg skip á síldveiðum núna en vertíðin er rétt að hefjast og vonandi fæst meira af síld á næstunni.