Samkaup hluthafafundur
Samkaup hluthafafundur

Fréttir

Sigvaldi búinn að afhenda söfnunarfé
Á myndinni hér að ofan sjá þegar Sigvaldi og Tinna Rut dóttir hans afhenda Guðmundi Björgvini, formanni stjórnar Umhyggju, afrakstur göngunnar.
Þriðjudagur 8. september 2015 kl. 11:35

Sigvaldi búinn að afhenda söfnunarfé

- Heldur áfram að styrkja fjölskyldur veikra barna á Suðurnesjum

Sigvaldi Arnar Lárusson, lögreglumaður og göngugarpur, afhenti í gær söfnunarfé sem safnaðist í sumar þegar Sigvaldi gekk frá Keflavík til Hofsóss til styrktar Umhyggju, sem er stuðnigsfélag langveikra barna.

„Á göngu minni þvert yfir landið tókst mér að safna talsvert mikið af peningum til handa Umhyggju. Einnig bætti ég alveg heilum helling í reynslubankann minn sem mun nýtast mér um ókomna tíð.

Mér finnst gaman að segja frá því að ég afhenti Umhyggju 2.017.000.- krónur í dag en þó er verkefnið enn í gangi.

Á vegi mínum í sumar varð nefnilega góðhjartaður aðili sem hefur verið að bæta í söfnunina. Aðili þessi hefur sett það sem „skilyrði“ að þeir fjármunir sem hann leggur til verði afhentir fjölskyldum sem eru með veik börn, á Suðurnesjum.

Þessi aðili er búinn að bæta ofan á þessa tölu sem ég nefndi hér að ofan nokkur hundruð þúsundköllum og er það mér sannur heiður að fá að taka þátt í því að koma þessu fjármagni hér út í samfélagið okkar suður með sjó,“ segir Sigvaldi Arnar á fésbókarsíðu Umhyggju-göngunnar í gær.

Fyrir nokkru síðan afhenti Sigvaldi fjölskyldu í Njarðvík 150.000 kr. sem kom frá þessum aðila og nú er kominn nýr styrkur frá þessum einstakilingi fyrir unga stúlku sem býr í Keflavík og mun Sigvaldi afhenda henni styrkinn síðar í vikunni.

„Þetta verkefni er búið að gefa mér alveg helling og hver veit nema ég splæsi í fleiri svona verkefni í framtíðinni,“ segir Sigvaldi Arnar Lárusson að endingu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn