Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sigurður ráðinn til Bláa Lónsins
Mánudagur 29. október 2018 kl. 13:48

Sigurður ráðinn til Bláa Lónsins

Sigurður Hilmarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður upplýsingatæknisviðs hjá Bláa Lóninu.

Sigurður hefur unnið við upplýsingatækni um áratugaskeið og var meðal annars forstjóri og framkvæmdastjóri hjá Annata, sem er hugbúnaðarfyrirtæki með starfsstöðvar víðsvegar um heiminn og þróar og selur eigin hugbúnað í gegnum net samstarfsaðila.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hann var einn stofnenda og framkvæmdastjóri xRM Software sem sameinaðist Annata árið 2016 en áður starfaði hann hjá Nýherja, TM Software og Applicon sem ráðgjafi og stjórnandi.

Sigurður er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Skövde í Svíþjóð. Eiginkona Sigurðar heitir Tinna Björk Hjartardóttir tölvunarfræðingur og starfsmaður Marel og eiga þau fjögur börn.