Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sigurður Ingimundason stýrir afreksbraut FS
Fimmtudagur 9. júní 2005 kl. 16:50

Sigurður Ingimundason stýrir afreksbraut FS

Afreksbraut íþróttamanna er ný af nálinni á Íslandi en þar er ungu fólki gefið einstakt tækifæri til þess að stunda íþróttir af kappi undir handleiðslu færustu þjálfara meðfram góðu og traustu námi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Sigurður Ingimundarsson er umsjónarmaður afreksbrautarinnar en hann er fær á báða vígvelli þ.e.a.s. námið og íþróttirnar. Námið er samstarfsverkefni hjá Íþróttaakademíunni og Fjölbrautaskóla Suðurnesja en boðið verður upp á fjórar íþróttagreinar. Þær eru golf, körfubolti, knattspyrna og sund. „Við erum með mjög færa þjálfara í öllum greinum. Guðni Kjartansson verður með knattspyrnuna, Brynjar Eldon Geirsson með golfið, ég með körfuboltann og Ingi Þór Einarsson með sundið,” sagði Sigurður í samtali við Víkurfréttir.

Nemendum verður leyft að velja um þrjár stúdentsbrautir en þær eru náttúrufræði, málabraut og félagsfræðibraut. „Þetta tækifæri hefur ekki bðið áður en hún á eftir að reynast dýrmæt reynsla fyrir alla sem nýta sér það. Kennslan og þjálfunin verður einstaklingsbundin þannig að hver og einn bætir mjög mikið við sig í sinni íþrótt,” bætti Sigurður við. Hluti af starfi Sigurðar felst í því að hafa samband við félagslið þeirra nemenda sem munu stunda nám á afreksbrautinni. „Ég mun verða í sambandi við liðin og fylgjast náið með æfingaálagi og öðru svo þau séu að fá sem mest út úr þjálfuninni frá okkur.” Sigurður hlakkar til að takast á við þetta nýja verkefni enda reynsla hans töluverð á bæði sviðum.

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu og líka frábært að svona nám sé komið til landsins hvað þá til Reykjanesbæjar,” sagði Sigurður. Gert er ráð fyrir því að um 30 nemendur stundi nám á afreksmannabrautinni til að byrja með en þó er ekki búið að ákveða það endanlega. „Ég held að það stefni í góða aðsókn og gæti jafnvel séð það fyrir mér að krakkar af landsbyggðinni sæki í þetta nám.” Sigurður telur að fyrsti árgangurinn sem útskrifast af brautinni verði fullur af afreksmönnum sem við eigum eftir að sjá töluvert af í framtíðinni. „Stefnan er að útskrifa af þessari braut mikið afreksfólk í íþróttum.”

Sigurður mun láta af störfum sem aðstoðarskólastjóri í Myllubakkaskóla eftir að hafa starfað hjá skólanum frá 1990. Sigurður hefur í ýmis horn að líta en hann er þjálfari Íslandsmeistara Keflavíkur í körfubolta og einnig þjálfari íslenska landsliðsins en aðalverkefni liðsins eru í september. „Eftir þau verkefni þá sé ég til hver framtíðin verður en samningur minn mun þá renna út,” sagði Sigurður að lokum.

VF-myndir/Atli Már: 1: Bygging Akademíuhússins gengur eftir áætlun. 2: Sigurður ásamt syni sínum Nóa.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024